Út að borða hittingur næsta sunnudag

Jæja gells

Ég er að koma í vettfangsferð í bæinn og langar mikið að hitta ykkur. Við Vala vorum með hugmynd að fara út að borða á sunnudagskvöldið.

Það væri gaman ef fleiri kæmu og við Búagellur mundum hittast.

Sunnudagskvöldið kl átta, Caruso væri hugmynd. Annars er mér alveg sama um stað :)

Endilega tékkið á kvöldinu og kommentið þið sem komist. Þetta er bara svona chill,þeir komast bara sem komast. Við Búagellur erum svo chillaðar ;)

Kv Pála


Koló-moll á morgun

Ég verð að selja í Kolaportinu á morgun!!!

Endilega kíkið á mig, verð með föt,föt, skó,föt og allskonar dóterí
 
Inga 



FRESTUN Á GLINGURSÖLU TIL MÁNUD. :)

Eigum við að ræða það hvað mar leggur á sig til að taka hárin af löppunumShocking ??? Var að kaupa svona RAFMAGNS-HÁR-PLOKKARA!!! OMG......hef aldrei farið í vax, hef bara notað krem og hand-knúna-rakvél Tounge

En ef ég held áfram í stelpumálum sem er ekki eins menningarlegt og sjálfshjálparbókarfærslan hennar SteinunnarLoL Viljiði tjékka á þessu, Katrín sendi mér þennan link fyrir nokkru og ég missti mig!!!

C-strengur !!!! 

 

22-8-2007-7215

22-8-2007-3765

En hver vill koma með mér í glingur/nærföt ofl.-heildsölu mánudaginn 8.okt kl.20??

ps.það er ekki verið að reyna selja okkur c-strengi, held að það séu bara "venjuleg"nærfötW00t

 Kveðja IngaHeart


UPPLYFTING:)

Hæhæ gellur:)

Langar bara að vita hvað þið eruð að gera þessa dagana gellur og senda ykkur risaknúsing héðan úr heilsusenterinu:) Var að stofna heilsuklúbb sem heitir UPPLYFTING og er fyrir alla sem langar til að lyfta heilsunni sinni upp á hærra plan:) Endilega látið mig vita ef ykkur langar að vera með:) Planið að hittast einu sinni í viku og gera eitthvað uppbyggilegt með fullt af skemmtilegu fólki:)

Langar líka að benda ykkur öllum á að lesa The Secret, hún er alveg snilldin fyrir alla sem vilja fá allt það besta út úr lífinu:)

Knús knús

Steinkan í heilsufíling:)


Bíóferð búagellur!!!

hæhæ gells....

Haldiði að ég hafi ekki fengið alveg brilliant hugmynd (já ég fæ svoleiðis annað slagið hehe)...hvernig líst ykkur á það að fara í bíó saman gellurnar á laugardagskveld klukkan 22.00???

Það er nottlega EKKI option að segja nei nema maður sé að fara á árshátíð í barcelona og komist ómögulega með...þetta er eina löggilda afsökunin þannig að Pálína og Berglind þið hafið ekki neina afsökun þannig að það er bara málið að setjast upp í kaggann og bruna í bæinn til að koma með okkur í bíó hehehehe:) meira að segja ættu allir grísir að vera sofnaðir klukkan tíu þannig að það er heldur ekki afsökun...ekkert mál að fá pössun með fyrir sofandi gríslinga í tvo tíma:):):)

Mér er reyndar alveg sama á hvaða mynd verður farið en mig langar bara í bíó með ykkur gellum þannig að ef einhver hefur skoðun á hvaða mynd ykkur langar alveg ógeðslega mikið að sjá þá skulið þið bara koma með hugmynd:)

en kveðja og stuðknús frá Steinunni með hugmyndaflæðið hér á kantinum...

 


Birna og Logi !!

Jæja víst gátan er leyst þá vil ég óska Birnu og Loga innilega til hamingju með litla búabumbukrílið !!

 Þetta er að  verða stórglæsilegur barnabúahópur sem við eigum stelpur.

KNÚS KNÚS frá öllum Búa

Kv PÓH

barn 

 


Búabarn á leiðinni í Mars

Hver haldið þið að eigi von á Marsbúa 2008 ??

 

 


Kveðjuhittingur Birnu

Birna er að fara til Spánar!

þess vegna ætlum við að hittast hjá mér(ingu) annað kvöld og slúðra úr okkur allt vit og éta á okkur gat af góðgæti W00t

þær sem eru að fara útá lífið getað komið með kokteilinn með sér og skálað við okkur og stutt er í bæinn frá mérTounge

 

Hlökkum til að hitta ykkur !!

Inga og Birna 

cocktails

 

 


Maraþon, Herbalife og hittingur hehe:)

Jæja gellur...líst sko aldeilis vel á hitting 23. sept...höldum hann hérna heima hjá mér:)

 

Nýjustu fregnir herma að þar sem ég og Pallan erum svo duglegar að æfa fyrir komandi maraþon ákvað ég að fara að selja Herbalife (þar sem ég nota það svo mikið hvort eð er hehe, svo gott fyrir svona æfandi fólk eins og mig, Pálínu og Becham hehe) þannig að í hittingnum 23. sept ætla ég að fá að æfa mig á ykkur...gefa ykkur sjeik, te og súkkulaði og sýna ykkur kannski einhverjar snyrtivörur eins og við vorum með hjá Berglindi hérna um árið múhaha:) En hljómar þetta ekki vel gells...allir að mæta í herbóhitting hjá mér þann 23. sept...ollræt:)

Svo er um að gera að allir séu duglegir að æfa fyrir maraþonið svo við getum nú verið í eplagrænum Búagellubolum í maraþoninu er það ekki snilldin hehe:)

En yfir og út í bili...hljómar líka vel að mæta í innflutningspartý hjá Katýnni úúúú:) svo er líka málið að fjölmenna á grænmetisnámskeiðið...koma svo gellur:)

knús í krús

Steinka herbi:)


Júhúuuu

Hæ hæ gellur

Ég var að spá hvort þið hafið áhuga á að hittast í saumó 23. sept. Mig langar svo að hitta ykkur og ég verð auðvita í bænum þarna vegna þess að námskeiðið er daginn eftir.

Við gætum tekið annað myndaflipp, hvað er skemmtilegra en að eiga fullt af myndum af ykkur gellur...

Væri jafnvel gaman að taka einhverjar myndir úti !!

Hvernig hafið þið það annars? Ég er farin að sakna þess mikið að heyra ekki í ykkur hérna snúllur...

Knúserí knús

Pálína


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband