GEÐVEIK HÖNNUN

Ég er bara slefandi hérna yfir þessarri línu frá þeim

http://www.e-label.is

 

GEGGJAÐ

 

KV Pála


Vísindi og nýöld - bólusetningar eða blómadropar

 

syringeHæ! Langaði að láta ykkur vita af næsta fræðakvöldi Res Extensa. Verður án efa mjög fróðlegt og gætu skapast skemmtilegar umræður!

 

 

 

 

                                     

Miðvikudagskvöldið 21. nóvember klukkan 20:00 mun Svanur Sigurbjörnsson læknir halda fyrirlesturinn Vísindi og nýöld –bólusetningar eða blómadropa í Öskju, náttúrufræðahúsi HÍ.
Í fyrirlestrinum mun hann fjalla um um bólusetningar og áhrif þeirra. Þá mun hann sérstaklega taka fyrir þá gagnrýni sem fram hefur komið á  bólusetningar og tengsl þeirra við alvarlega kvilla, svo sem einhverfu. Áætlaður tími eru 25-30 mín en að honum loknum verður fyrirspurnatími.
Fyrirlesturinn er haldinn á vegum Res Extensa, félags um hug, heila og hátterni (www.resextensa.org).
Fyrirlesturinn fer fram í fyrirlestrarsalnum (stofu 132) í Öskju, náttúrufræðahúsi HÍ, og hefst kl. 20:00, miðvikudaginn 21. nóvember. Allir velkomnir.

Minni líka á heimasíðu Res Extensa

Kveðja Guðfinna


Afmæli hjá Ísabellu Sól:)

IMG_9367 (Medium)17. nóvember er dagurinn:) 

Hellú gellur:) Jæja þá er komið að því að Ísabella ofurgella er að verða 1 árs á laugardaginn:) Af því tilefni verður að sjálfsögðu haldið prinsessuafmæli og er öllum Búameðlimum boðið:)

Við vorum að hugsa um að hafa afmælið bara snemma á meðan allir eru ferskir (nema djammararnir að sjálfsögðu hehe) þannig að allir mæta ferskir klukkan 11 á laugardagsmorguninn, alveg í boði að vera þunnur líka, alltaf til nóg af herbalæfi hér á bæ til að laga þynkuna múhaha:) En endilega látið mig vita hvort þið komist gellur:) knús knús og hlakka til að sjá sem flestar:)

Steinunn og Ísabella afmælisofurgella:)


vóóóóó

rólegar stelpur, þið eruð alltof mikið að blogga hérna! Slaka aðeins á skoShocking maður veit nú orðið of mikið af ykkur jedúddamía!!!

 

 

 

 

Kveðja úr sveitinni, er á fullri ferð með ritgerðina og næ að verða ferðamálafræðingur fyrir þrítugt...

....vonandiBlush

Berglind.


Að læra utan að..

...er góð skemmtun!

Mér datt í hug þar sem það eru svo mikil gáfumenni hér á blogginu að leyta til ykkar með eitt vandamál. Sko: ég á hrikalega erfitt með að leggja ný orð á minnið, s.s. ný ensk fræðiheiti þetta gjörsamlega hringsólar allt í hausnum á mér en ég þarf að muna þetta en næ ekki að festa þetta.  Kunnið þið góða tækni sem þið viljið koma á framfæri? Ég veit um stelpu sem tók ensku í H.Í. og þurfti að læra 100 orð á viku eða e-ð og þau notuðu vissa tækni og hún vildi ekki segja mér það.... tíkin sú arna! Ef þið kunnið tæknina endilega látið mig vita.

 Venlig hilsen frá HornafjörðurWhistling


Djamm næsta lau???

Jæja gellur!!

Okkur Cömmu er farið að klægja í fingurnar að komast í nálægð við hvítvínið !!

Er stemming fyrir því að við skellum okkur á Gogga Michael showið á Broadway næsta lau ????

Setjum nú púður framan í okkur  og hrisstum á okkur bossann undir geggjuðum tónum Gogga Rokk.

Berglind þú drífur þig upp í bíl eins og ég og við brunum í bæinn. Verðum mættar eldmóðar á Broadway rétt áður en gæjinn stígur á svið !!!!

Pála Broadway gella og Camma hvítvínsgella


Grænt á dag kemur heilsunni í lag!

GetAttachment-1.aspx

GetAttachment.aspx

GetAttachment-3.aspx

GetAttachment-2.aspx

KVEÐJA INGA

(Í GRÆNMETISÁTAKI!)

 


Heilalausi Steingervingurinn segir þetta:

 

Hvað er nú að frétta af ykkur? hvernig gengur að æfa fyrir maraþonið næsta sumar, eru margar að stefna á það?? Ég er að spæna upp nýju tartanbrautina hér á Hornafirði, aldrei að vita nema maður skelli sér 10 km hlaupið, alveg svaka flottur íþróttavöllur sem hann Haukur minn sá um að gera, ...eða borga með fjármunum sveitarfélagsins! Allavega þá erum við bara spræk, hress og kát, erum að fá sérpantaðar barnapíur úr höfuðborginni í dag (amman og afinn) og við Hauxi ætlum að skella okkur á 80'show sem er verið að sýna hér eftir Felix Bergsson, ...þannig að ég verð hress á sunnudaginnCrying

En mig langaði að sýna ykkur svolítið, kannski hafið þið þegar séð þetta?  Það væri allavega gaman hvað heilahvelsáhugamanneskjan frá Mælifelli hefði um þetta mál að segjaWink En horfið á ballerínuna og tékkið á því hvort þið sjáið hana snúast til hægri eða vinsti, ég sá hana snúast í báðar áttir sem þýðir að bæði heilahvelin mín eiga að vera ágætlega virk.... eða ofvirk! en sumir sjá hana bara snúast í eina átt, MAGNAÐ!

 

http://www.news.com.au/dailytelegraph/story/0,22049,22535838-5012895,00.html

 

Góða helgiW00t Mbk, Berglind.


Dönsum

ÞETTA ÆTTI AÐ HITA YKKUR UPP FYRIR HELGINAW00t

http://www.youtube.com/watch?v=1j_fxs8mUcQ 

~GLEÐILEGA HELGI BÚAGELLUR~

inga 

HeartHeartHeart

 

 


Vegamót

Hvernig hljómar Vegamót klukkan 20:00 á sunnudagskvöldið. Temmilegt verð, og allir geta fundið eitthvað sem þeim langar í ;O)

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband