Goodbye my ladies
31.5.2008 | 23:14
Jæja elskur þá ætla ég að skjóta inn smá kveðjufærslu á ykkur.
Nú er undirbúningur á kafi og allt að vera komið ofaní tösku. Ég næ að hitta hluta af hópnum áður en ég fer. En vegna tímaleysis þá sendi ég rafrænt knús á ykkur hinar.
Hafið það ógeðslega gott í sumar, verið duglegar að henda inn bloggi um hvað þið eruð að gera. Ég kemst stundum í tölvu þarna og þá að sjálfsögðu verður Búasíðan í uppáhaldi.
Farið vel með ykkur og njótið sumarsins í botn.
RISAKNÚS
Pálína Grænlandsfari ( segja svo að þessi Búaklúbbur sé ekki alvöru ævintýraklúbbur )
Athugasemdir
halló
pála mín rosalega góða ferð og hafðu það sem allra best í landi ísbjarnanna...
vonast til að heyra æsispennandi ferðasögur sem allra fyrst
kv katý
Katý (IP-tala skráð) 1.6.2008 kl. 16:43
Eigðu gott sumar á Grænlandi vinan
Guðfinna Alda, 1.6.2008 kl. 20:31
Góða grænlandsför:) Hlakka til á morgun:) knús Steikin
Steinunn Gerður (IP-tala skráð) 1.6.2008 kl. 23:13
Eigðu rosalega góða og ævintýramikla dvöl í sumar á grænlandinu góða:)
Ástarkossar og knús til þín Pála mín;)
hlakka til að fylgjast með dvölinni á blogginu
kv Snolla
Snolla ritgerðarskrifari (IP-tala skráð) 2.6.2008 kl. 12:43
Góða ferð og góða skemmtun í þessu mikla ævintýri. Mér finnst frábært að þú ætlir að kýla á þetta krefjandi en samt spennandi tækifæri. Mikið hlakka ég til að sjá myndirnar frá landinu Græna.
Þú hefðir nú getað tekið greyis ísbjörninn sem var að þvælast í Skagafirðinum, synd að skjóta bangsa litla, hann hefði getað farið með Pálunni sinni
Knúsingur!
Berglind (IP-tala skráð) 3.6.2008 kl. 14:36
Hæ sætu stelpur :) Ætladi ad kasta inn kvedju herna. Eg blogga a minu bloggi um ferdina, her get eg ekki slegid inn lykilordid vegna islenskra stafa.
ÆVINTYRAKNUS A YKKUR
Palina (IP-tala skráð) 13.6.2008 kl. 11:35
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.