Minning
15.2.2008 | 21:19
Varð að deila þessu með gömlu FÁ-stelpunum mínum
(tekið af fa.is)
Í dag er borinn til grafar Kristinn Kristjánsson framhaldsskólakennari. Kristinn fæddist í Reykjavík 23. september 1954. Hann lést á heimili sínu 5. febrúar síðastliðinn.
Kristinn kenndi íslensku við Fjölbrautaskólann við Ármúla. Hann var ötull kennari og vann m.a. ómetanlegt frumkvöðlastarf þegar skólinn gerðist þróunarskóli í upplýsingatækni og hóf fjarkennslu. Hann var frábær fagmaður, höfundur kennsluefnis og oft manna fyrstur til að koma auga á nýjar leiðir í kennsluháttum.
Kristinn var einn stofnenda félags sem hafði það að markmiði að efla veg íslenskra glæpasagna; Hins íslenska glæpafélags. Hann var fyrsti foringi félagsins og heiðursforingi þegar hann lést.
Starfsmenn skólans votta syni hans og ástvinum innilegustu samúð.
Athugasemdir
ég setta þetta inn btw.
Inga (IP-tala skráð) 15.2.2008 kl. 21:22
je minn eini...var einmitt búinn að heyra af þessu!! Greyið kallinn...hann var nú alveg ágætis íslenskukennari, skemmtilegur sögukall og svona:) Blessuð sé minning hans
Steinunn (IP-tala skráð) 15.2.2008 kl. 21:27
Ég er í algjöru sjokki. Skemmtilegur og fjörugur kennari sem á nú stóran þátt í minningarbankanum frá FÁ.
Blessuð sé minning hans...
Pálína (IP-tala skráð) 15.2.2008 kl. 21:32
Ji minn ég er líka í sjokki...var hann eitthvað veikur eða eitthvað svoleiðis veit það einhver?...greyið maðurinn...hann var svo ungur...blessuð sé minning hans...
Birna bumba (IP-tala skráð) 16.2.2008 kl. 18:40
Blessuð sé minning hans
Guðfinna Alda, 16.2.2008 kl. 21:56
Guð blessi hann og fjölskyldu hans.
Berglind (IP-tala skráð) 17.2.2008 kl. 12:54
***Blessuð sé minning hans***
Snolla (IP-tala skráð) 19.2.2008 kl. 12:43
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.