Hugmynd

Hæ elsku pæjurnar mínar

Þar sem mér sýnist að við getum ekki komið okkur saman um dagsetningu á ferð til Akureyrar, þá ætla ég ekki að láta deigan síga heheh. Þið losnið ekkert svona við mig pæjur. Ég er að koma í bæinn síðustu helgina í febrúar og datt í hug hvort við gætum kannski skellt okkur í leikhús eða eitthvað. Mig langar allavega ægilega mikið að hitta ykkur.

Annahvort það eða við tökum daginn frá og skellum okkur í Bláa lónið eða eitthvað. Hvað segið þið um þetta ?????

Ég er með fullt að hugmyndum og marg skemmtó hægt að gera, aðalmálið er bara eru þið til og eru þið lausar??????

Kv Pála

2004_0225_175232AA_gop_sized


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðfinna Alda

Ég verð á Ítalíu elskan, hefði annars verið game!

Guðfinna Alda, 15.2.2008 kl. 16:07

2 identicon

TIL Í HITTING, get þessvegna boðið fram íbúðina fyrir KOKTEIL,KJÓLA OG HÁA HANSKA-PARTÝ!

Inga (IP-tala skráð) 15.2.2008 kl. 20:34

3 identicon

ég er alltaf til í skemmtun:) teldu mig með elskan:) hlakka mega mikið til að hitta þig og ykkur hinar:)

knús Steikin:)

Steinunn (IP-tala skráð) 15.2.2008 kl. 21:25

4 identicon

Geggjað, ég er SKO til í bláa lónið, og gala party  og svaka spila kvöld.

Hlakka til

valas (IP-tala skráð) 15.2.2008 kl. 22:48

5 identicon

jibbí ég er sko laus og liðug og til í lónið og svo djamm á eftir:)

mikið eigum við eftir að skemmta okkur vel, gott vín góður félagsskapur, gæti ekki verið betra. hlakka mikið til....

kv 

Katý (IP-tala skráð) 16.2.2008 kl. 18:43

6 identicon

houlala þetta hljómar spennó, væri sko geim ef ég væri aðeins nær ykkur. Mér var plantað (eða ég hálf plantaði mér sjálf) í saumaklúbb hér á Höfn um leið og ég mætti á svæðið, það er bara nauðsynlegt að vera hluti af svona góðum hóp og geta brasað eitthvað saman í hversdagleikanum.

Við erum einmitt að fara í gelluferð næsta föstudag, í pottapartí og skemmtilegheit. Það er búið að skipa í nefndir, matarnefnd, kokteila-og desertanefnd og skemmtinefnd, ...sem ég skipaði sjálfri mér í hahaha. Síðan er food and fun festival á Hótelinu á sunnudag og þær sem verða búnar að ná sér ætla að láta makann bjóða sér í fíneríið, maður hlýtur nú að vera búin að jafna sig þrátt fyrir stighækkandi aldur.

En allavega góða skemmtun girls, verð með ykkur í "vín"anda bahahahaha

og Guðfinna, farðu varlega í brekkunum, þær ku vera frekar háar þarna í jaðri Alpafjallanna, og ég bið að heilsa tendgó, passaðu að þau séu ekki of full í brekkuknum;) vonandi bjóða þau okkur með á næsta ári;)

Berglind (IP-tala skráð) 17.2.2008 kl. 13:02

7 identicon

Ég ætla flytja á Höfn og leika við þig þar. Ég er alveg að sjá að þessi staður er fyrir mig hahaha. Ég planta mér þá í kokteilnefndina. Nú eða ég og Þorri plöntum okkur í wískínefnd eða eitthvað hahahah

Hafðu það gott elskan

Pálína (IP-tala skráð) 17.2.2008 kl. 15:38

8 Smámynd: Guðfinna Alda

Ég ætla að vera full með þeim í brekkunum Berglind!  Hvernig á ég öðruvísi að þora niður þær!

Guðfinna Alda, 17.2.2008 kl. 17:02

9 identicon

Sælar elskurnar.

Ég er sko heldur betur til í hvað sem er, einu hanskarnir sem ég á samt eru annaðhvort svartir netahanskar eða bleikir með dúskum;)hehe

Ef Óli verður ekki í Tælandi þá kem ég pottþétt.

Knús frá Möggunni.

Magga (IP-tala skráð) 18.2.2008 kl. 03:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband