Ævintýraferðin
23.1.2008 | 14:34
Jæja pæjur nú er komið að því að skipuleggja þessa ferð ögn betur svo að henni verði.
Pottþéttar inn í ferð
Pálína
Inga Hrönn
Camilla
Katy
Steinunn
Guðfinna ( kannski, búin að láta heyra í sér allavega hér í kommentakerfinu)
Þið sem eigið eftir að svara
Vala
Snolla
Berglind
Magga
Katrín( Inga endilega draga hana með)
Held að ég sé ekki að gleyma neinum
Dagskrá
Fös: Koma á norðurland. Katy nefndi að það er möguleiki að vera hjá henni, þá er það chill og kannski kíkja í pottinn um kvöldið .). Einnig væri gaman að fara í Litla- skóg, ég er með marga frumlega leiki sem ég hef lært í skólanum. Mohito á brúsa og við skemmtum okkur í skóginum.
Lau: ENDALAUS GLEÐI, skíði, bretti, þota eða whatever :O). Er með varaplan ef snjórinn klikkar og svo tjútt um kvöldið.
Sun: Heimför og gleði í hjarta yfir ÆVINTÝRAHELGI MEÐ BÚA.
Málið er að við þurfum að negla endanlega dagsetningu og endanlega tölu. Því ég þarf að athuga með húsnæði á Akureyri. Þannig stelpur ef þið sjáið ykkur ekki fært að koma, endilega segið það svo marr geti haldið áfram að plana hihihihi.
Jæja knúsírassgöt
ég er of spennt fyrir þessu
Pála
Athugasemdir
Jæja er ekki málið að negla þetta svolítið, mig langar að koma með uppástungu um nokkrar helgar. Helgin 28 feb eða helgin 16 feb, 8 mars(halda uppá afmæli pöllunar með style, ef þú Palla mín ert ekki í einhverri ferð í skólanum) eða 28 mars. Ég er sko mega spennt fyrir þessu og held að þetta gæti alveg verið ferð á við 72 vítamín sprautur hehe
Camma norðurlandsfari (IP-tala skráð) 23.1.2008 kl. 21:00
28. mars er helgin eftir páska. Hún hljómar mjög vel í mínum eyrum.
Ég fattaði ekki að Camma kemst auðvita ekki 14.mars, kallinn hennar 30 ára sama dag.
HVað segið þið hinar um 29.mars helgina?
Pála (IP-tala skráð) 23.1.2008 kl. 21:10
hæ líst alveg rosalega vel á þetta og er í raun sama hvenær við förum, hlakka bara alveg rosalega mikið til, þetta á eftir að vera geggjað stuð...:)
kv katý
Katý (IP-tala skráð) 23.1.2008 kl. 22:34
Sælar elskurnar Líst vel á þetta en hef ekki hugmynd um það hvort ég komist með. Kallinn er að fara til Brasilíu, Jamaica eða Kúbu einhvern tíman á tímabilinu 20 feb til 28 mars í 10 - 14 daga þannig að ég verð ein með Elísu og á erfitt með að fá pössun með löngum fyrirvara, en ég reyni eins og ég get þegar föst dagsetning er komin á ferðina. ´
Annars er Elísa nýkomin af bráðamóttökunni einu sinni enn, brenndi sig á eldavélinni á vinstri hendi. Svaka stuð og ég í geðveikum móral þó ég hefði ekkert getað gert:(
Knús, Magga
magga (IP-tala skráð) 24.1.2008 kl. 14:47
lýst rosa vel á þetta...þetta er geggjuð hugmynd:)
reyni eins og ég get að koma með... vonandi hittir helgin á pabbahelgi;) hmm 29 mars æj ekki pabba helgi, en get vonandi reddað því:P
erfitt að svara með svona löngum fyrirvara... alltaf e-h sem kemur uppá:S en skil vel að það þurfi að panta með fyrirvara:) ég lúlla þá bara á gólfinu;)
kv Snolla
Snolla (IP-tala skráð) 26.1.2008 kl. 00:54
Jóel á afmæli 29.mars. svo mín verður á kafi í afmæliskökubakstri þá :s
Inga (IP-tala skráð) 26.1.2008 kl. 21:46
Held að þetta sé orðið of nálægt lokaprófum til að ég geti farið í helgarferð, en ekki láta mig stoppa ykkur darlings
Guðfinna Alda, 27.1.2008 kl. 16:38
æj æj... allir svo busy:( en fyrri hluta mars?
Snolla (IP-tala skráð) 27.1.2008 kl. 19:09
Gaman að þessu, allir að skella sér:) Það er aðeins of langt fyrir mig að fara í þetta skiptið ca 10 klst keyrsla, frá Höfn og við verðum nýkomin frá Reykjavík city, ætlum að vera þar um páskana og svo er bara hriiiiiikalega mikið að gera hjá kellunni þessa dagana, orðin kennari sko bahaha ég ætlaði sko aldrei að verða kennari, en það er gaman að kynnast þessu og öllu fólkinu sem er í þessu batteríi hér á Höfn.
Ég var að taka að mér sögukennslu í 8. 9. og 10 bekk og það er ekkert smá mikil vinna að koma sér í það allt saman, nú svo skellti ég mér í stjórn foreldrafélagsins hjá leikskólunum, er að æfa blak og er enn sem komið er lélegust en er þarna af einskærum áhuga og í leit að skemmtilegum félagsskap. Við hjónin vorum svo kosin í þorrablótsnefnd Hornafjarðar 2009, sem telst "góður" árangur eftir að hafa búið hér í tæplega ár (margir búnir að búa hér alla ævi og hafa aldrei verið kosnir, heppnir þeir ...en örugglega hrikalega leiðinlegir
) Nú svo er ég að rembast við að klára þessa BS ritgerð en ég er nú allveg að úldna yfir henni, einnig er ég að vinna í því að sækja um styrki til þess að opna kaffi og kúltúrhús þar sem menning og listir ásamt góðu kaffi og heimabakaðri súkkulaðiköku munu vera í aðalhlutverki.
Annars allt fínt að frétta af okkur, allir sprækir og spraðalegir. Hlakka til að hitta ykkur rússurnar mínar, hvenær sem það nú verður. Kannski í ævintýraferð á Suðurlandi;)
Knúúúúúúsingur frá mér.
Berglind (IP-tala skráð) 28.1.2008 kl. 14:57
Duglega Berglind mín! Allt að gerast hjá þér! Ég ætla í road trip um Ísland næsta sumar, eins gott að kúltúrhúsið þitt verði þá ready!
Guðfinna Alda, 28.1.2008 kl. 15:27
Gaman að heyra í þér Berglind !! Þau eru heppin þarna á Höfn að´fá eitt stykki félagsgosa eins og þig ;)
Í sambandi við ferðina gellur, komist þið allar 14.mars nema Camma? Ef svo er þá er Cömmu sama að við förum án hennar, sp ef allir komast þá að kýla á þá dagsetningu.
HVað segið þið um það ?
Knús
Pála (IP-tala skráð) 28.1.2008 kl. 21:54
Mikið rosalega er gaman að heyra í þér Bergling mín og frábært að heyra að þið hafið nóg að gera brjálað stuð á Höfn...:)
en hvað varðar ferðina á er ég game:) hlakka rosa til og vona að sem flestir gefi sér tíma til að skella sér:)
kv
Katý (IP-tala skráð) 29.1.2008 kl. 22:31
Hæ skvísur.
Líst vel á þetta hjá ykkur og ef ekki væri fyrir utanlandsferð hjá okkur hjónunum í lok mars, þá myndi ég kýla á þetta og koma með. En móðurhjartað höndlar ekki of mikinn aðskilnað frá krílunum sínum, svo ég læt utanlendsferðina duga í bili.
En takk fyrir að hugsa til mín, þið eruð náttla svo mikil yndi allar saman.
Knús til ykkar, Katrín
Katrín (IP-tala skráð) 1.2.2008 kl. 09:57
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.