JANÚARGJÖFIN FER TIL daddadaddadada

Það vita nær flestar um hvað mánaðargjafirnar snúast, nema Inga (suprise for you), eftir hringingar frá kolóðu dömunni frá Króknum í gær hehe. Við erum 12 Búaskvísur ( held ég pottþétt) og Inga Hrönn er sú fyrsta sem fær minningargjöf frá okkur. Ég held að svona hlutir geri mikið fyrir hversdagslífið og tilveruna. Þannig Inga enjoy. Febrúarbarnið er SNJÓLAUG.......... 

Knús Pála

 

Manneskjan er ótrúlega töff í fasi og stíl. Veit hvað hún vill fá út úr lífi sínu og gefur öllum í kringum sig kraft og jákvæðni sem veganesti fyrir næsta dag. Hún er rokkgyðjan í hópnum og veit upp á hár allt um flottustu hljómsveitir bæjarins. Janúarmanneskjan og DÍVA með meiru er INGA HRÖNN SVEINSDÓTTIR

 

 “Inga er bara Yndisleg manneskja. Svo ótrúlega flott týpa og töff í tauinu alltaf. Geislar jafnt af innri fegurð jafnt sem að utan.  Inga kemur manni alltaf til þess að hlæja og er með húmorinn á hreinu.Hún er góður hlustandi og kann að peppa mann upp þegar svo ber undir, svo þegar á að sletta úr klaufunum er hún algjör stuðpía.  Hún er jafnt blíð eins og hún er ákveðin. Með sitt allt á hreinu “ 

 “hún er algjör stuðbolti
rosalega góður vinur vina sinna
gullfallegt og smitandi bros
alltaf til í að gera eitthvað nýtt og spennandi
ofsalega flott mamma
eðal rokk gella
og með lúkkið sitt á hreinu”
  

“Hún er lífsglöð, lumar alltaf á góðum hugmyndum. Rosalega flott týpa. Kemur með ferskan blæ þar sem hún mætir. Rokkskutla með meiru !!!” “þú færð alla í kringum þig til að brosa þegar þú kemur inn með hressleikann þinnþú ert alltaf til í að gera eitthvað nýtt og skemmtilegsvo opinn og jákvæð í öllum umræðum”  

“Inga er tvímælalaust rokkarinn í hópnum og er alltaf til í stuðið. Hún hreinlega geislar af lífsorku, er alltaf brosandi og með einn mest smitandi hlátur sem fyrir finnst. Svo er hún líka ofurtöffari, alltaf mega töff klædd og með flottasta hárið í hópnum. Frábær vinkona í alla staði...elska þig beibí”

Hér færðu nokkur sæt orð frá okkur gella, til að brydda upp á janúarmánuð. Ég enda á bleikum lit, því ég veit hvað þér þykir vænt um litin út af ömmu bleiku :) Í lokin söfnuðum við nokkrum myndum til að sýna allt það skemmtilega sem þú ert alltaf að gera.

Við elskum þig endalaust KNÚSSSS

P.s Hinar Búagellur sem ekki náðist í og eiga eftir að skrifa um Ingu og vilja að sjálfsögðu gera það. Kommentið á hana, því hvað er skemmtilegra en að fá svona falleg komment um sig. KNÚS

RokkhjóninFallegu mæðgininStolt Búagella

Lífsglaða partýljónið20070424232851_1

crazyyyy people

20060207230908_2 

ÞÚ ERT ROKKARI AF GUÐS NÁÐ OG ÆÐI ÆÐI ÆÐI

Kv Búagellur


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Emma Vilhjálmsdóttir

Sérstakt að þú ert með eins höfuðmynd og ég, þ.e. apann

Emma Vilhjálmsdóttir, 21.1.2008 kl. 23:05

2 identicon

Apinn er greinilega hot á bloggum lansins

Búapíur (IP-tala skráð) 21.1.2008 kl. 23:18

3 identicon

~Höfuðmyndin(simpansinn) er náttlega tákn um Pansana í hópnum og ævintýraþrá Búaklúbbsins~

GUÐ MINN GÓÐUR STELPUR!!!!!! ÉG SIT HÉRNA OG GRENJA OG HLÆ TIL SKIPTIS!! (Rokkarar grenja líka:) En JESÚSSS hvað ég fer hjá mér og er stolt af að vera ein af ykkur í þessum yndislega hóp! Þið eruð ósjaldan búnar að bjarga lífi mínu bara með nærveru ykkar og útgeislun!

Get ekki beðið eftir að fá að tjá mig um ykkur,

ELSKA YKKUR ALLAR MEÐ TÖLU

Inga (IP-tala skráð) 22.1.2008 kl. 11:17

4 identicon

GEGGJAÐ GAMAN AÐ ÞÚ FÍLAÐIR ÞETTA. Gellur miss skipulögð.is er náttla búin að etja allar gellurnar niður á mánuði og svona lítur þetta út, svo þið getið byrjað að hlakka til ykkar mánaðar.

Jan: Rokkgyðjan Inga

Feb: Snolla gull

Mars: Heilsu-Steinkan

Apríl: Skipulagsfrúin Katy

Maí: Bjútí drottningin hún Camilla

Júní: Prestdóttirin Guðfinna

Júlí. Bumbugellan Birna

Ágúst: Grænlandsleið daman Magga Krull

Sept: Wedding baby gyðjan Vala

Okt: stuðboltinn Berglind

Nóv: Rokktvibbin Katrín

Des: Ofvirka króksfrúin

ÉG HLAKKA SVO TIL DADDDADDADAAD AÐ SKRIFA UM YKKUR ALLAR DADADADADADAA... lag sem hljómar í höfði mér,,, endilega syngið þetta hah

Pálína (IP-tala skráð) 22.1.2008 kl. 12:10

5 identicon

Gleðipinni, húmoristi, endalaust hress en líka alvarleg þegar við á, ...samt alltaf stutt í grínið, algjör töffari og bara endalaust sniðug og alltaf stútfull af hugmyndum hvort sem það er í sambandi við að BREYTA TIL HEIMA HJÁ SÉR endurhanna föt eða bara hvað sem er.

Traustur vinur, algjör sjarmi og yndisleg stelpa.

Berglind (IP-tala skráð) 29.1.2008 kl. 13:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband