Jólasveinn kemur í kvöld

LOKSINS,LOKSINS,
KEMUR JÓLASVEINN TIL BYGGÐA Í KVÖLD!!
SexySanta
 
HeartHvernig er ykkur búið að ganga í prófunum, þær sem eru í prófum Heart
HeartEruð þið byrjaðar að skreyta, eða búnar, eða of mikiðHeart
Heartá að baka, gera konfekt, búa til jólakort....... Heart
Heartlangar að heyra hvernig jólastaðan er á ykkur elskurnarHeart
Inga
(santa´s little helper:) 
 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

úlllalala...flottur santa...hehehe...engin próf hjá mér...búin að skreyta...ætla að reyna að baka nokkrar smákökur eða konfekt í næstu viku áður en ég kem heim...samt vantar smá svona meiri jólastemmara hingað...það er svo erfitt að komast í jólafíling þegar það er sól og 20 stiga hiti...reyni samt að hlusta á íslensku jólageisladiskana af og til hehehe...kem heim eftir 12 daga jibbí

Birna bumba (IP-tala skráð) 11.12.2007 kl. 16:54

2 identicon

Jeijj...verður æði að fá þig heim Birna, vonandi verður snjór þegar þú kemur:) mér er búið að ganga bara ossa vel í fjórum prófum sem ég er búin með, á eitt eftir á föstudaginn og ÞÁ VERÐUR FARIÐ Á FULLT Í JÓLASTÚSS!!!

langar að gera konfekt, búin að gera piparkökuhús (sjá barnaland:)....svo þetta hefst allt á endanum

Inga Santa´s little helper (IP-tala skráð) 11.12.2007 kl. 19:19

3 identicon

Jiii þið eruð svo miklar krúttur. Ég kemst í jólaskapið á að lesa þetta.

Skellti mér á jólatónleika með KK og Ellen í Hóladómkirkju um daginn, vá hvað það var´æðislegt.

Hlakka til að sjá þig Birna og bumbuna og auðvita ykkur allar pæjur :)

Haldið áfram að vera svona ógisslega duglegar

Knús frá Króknum

Pálína (IP-tala skráð) 11.12.2007 kl. 20:13

4 identicon

Talandi um tónleika, mig langar alveg GEÐVEIKT á miðnæturtónleika með Páli Óskari og Moniku á aðfangadagskvöld!!! í Fríkirkjunni!

Hefur einhver farið á þá síðustu ár???

Inga Santa´s little helper (IP-tala skráð) 11.12.2007 kl. 21:53

5 identicon

hellú gellur...já jólastemmarinn hann er skemmtilegtur:) það er búið að setja upp jólaseríu úti og eitt smá jólaskraut hér inni:) Er vön að vera búin að skreyta jólatréð á þessum tíma en jólaandinn er eitthvað seinn í ár!! Ég fer í síðasta prófið á morgun og er að venju EKKERT búin að læra fyrir það hehehe:)

Við Siggi keyptum okkur íbúð á fimmtudaginn síðasta í Lindasmára 27:) Það er svona íbúð eins og mamma og pabbi áttu með sér inngangi, sér garði og alles:) Hlökkum mikið til að fá hana þann 1. febrúar:) Semsagt hörku innflutningspartý í feb:)

Ég var að hugsa um að halda smá jólaföndur fyrir Búagríslinganaí næstu viku...verður auglýst síðar:)

En gangi ykkur vel í prófunum og öllu saman gellur:)

knús Steinkan alveg að komast í jólastuðið:)

Steinka stuðari:) (IP-tala skráð) 12.12.2007 kl. 09:59

6 identicon

ha jólastemmari hvað er það!!  er samt búin að koma öllu jólaskrautinu upp, bara jólatréið eftir að koma upp, en það verður tekið upp strax eftir helgi þegar síðasta prófið er búið... úff ekki gaman að vera í prófum svona langt fram í desember!!

en annars komst ég í rósa jólastuð síðustu helgi þegar ég fór með vinnunni á jólahlaðborð hjá grandhóteli, það var rosa flott og veitingarnar alveg geggjaðar.. svo voru Sigga og vinkona úr  Tínu showinu að reyna að koma smá jólafíling í liðið og sungu vel valin jólalög eftir matinn.

ég hugsa að ég nenni ekki að baka þessi jól eins og þau síðustu... auðveldara að kippa þessu bara með úr vinnunni:)  en þar byrjaði jólabaksturinn í enda nóvember þannig að maður er komin með pínu ógeð hehe... en ætli ég taki mig ekki til og leyfi krökkunum að baka og skreyta piparkökur í næstu viku þegar þau koma heim frá pabba sínum og ég komin í langþrátt jólafrí:)

svo er bara jólagjafaleiðangurinn allur eftir... úff gaman að gera það svona korteri fyrir jól:P

vá geggjað hjá ykkur Steinka og Siggi, innilegar hamingjuóskir með slottið:)

en ég er sko alveg til í jólaföndur í næstu viku:) vonandi kemst maður í jólafíling þá;)

gangi ykkur vel í öllu elskurnar:)

kv Snolla 

snolla (IP-tala skráð) 12.12.2007 kl. 10:11

7 identicon

TIL HAMINGJU STEINUNN OG SIGGI !!! YNDISLEGA FRÉTTIR FYRIR VÍSITÖLUFJÖLSKYLDUNA!

ég fór einmitt á Grandhótel með vinnunni hans Agga og þá fyrst kom jólaandinn í mig, þetta var dásamlegt frá A-Ö

ps.ég er búin að skreyta jólatréð :) jeijjj

Inga Santa´s little helper (IP-tala skráð) 12.12.2007 kl. 11:43

8 Smámynd: Guðfinna Alda

Ég er að springa úr jólagleði!  bakstur, jólalög, fullt af jólabjór, jólahlaðborð, jólaskraut og jólagjafir hefur einkennt Tunguásinn undanfarna daga ! Svo verður jólahátíðinni eytt í sveitasælunni norðan heiða með fjölskyldunni og tengdó og tekið að minnsta kosti eitt tjútt eða svo á króknum! Eigið góða hátíð allar sætu konur  og já Til hamingju með nýju íbúðina Steinunn!!  

Guðfinna Alda, 12.12.2007 kl. 12:36

9 Smámynd: Guðfinna Alda

Heyrðu já Inga varðandi Pál og Moniku, ég væri pottþétt að fara ef ég væri ekki stödd á í Skagafirðinum. Jóladiskurinn þeirra er dásamlegur, get ekki trúað öðru en að þau saman í þessari æðisslegu kirkju sé annað en hátíðlegt og fallegt, endilega skellið ykkur

Guðfinna Alda, 12.12.2007 kl. 12:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband