Að læra utan að..
29.10.2007 | 11:28
...er góð skemmtun!
Mér datt í hug þar sem það eru svo mikil gáfumenni hér á blogginu að leyta til ykkar með eitt vandamál. Sko: ég á hrikalega erfitt með að leggja ný orð á minnið, s.s. ný ensk fræðiheiti þetta gjörsamlega hringsólar allt í hausnum á mér en ég þarf að muna þetta en næ ekki að festa þetta. Kunnið þið góða tækni sem þið viljið koma á framfæri? Ég veit um stelpu sem tók ensku í H.Í. og þurfti að læra 100 orð á viku eða e-ð og þau notuðu vissa tækni og hún vildi ekki segja mér það.... tíkin sú arna! Ef þið kunnið tæknina endilega látið mig vita.
Venlig hilsen frá Hornafjörður
Athugasemdir
Ég er með tækni
Kúgum tíkinina sem kann tæknina og fáum aðferðina svo upp úr henni. Ég skal taka að mér að kúga kvikindið en um leið vil ég fá sölurétt á aðferðinni MOHAHAHAHHA
Geggjað gellur að þið séuð stemmdar fyrir tjútttinu.. Hlakka mikið til
Pálína (IP-tala skráð) 29.10.2007 kl. 16:05
hæhæ...það sem virkaði fyrir mig í vöðvafræðinni fyrir nokkrum árum var fuuuuuullllt af herbatei og próteinbar og þylja bara aftur og aftur og aftur og fá einhvern til að hlýða mér yfir þar til ég mundi ekkert annað:) En gangi þér vel gella:)
knús Steinkan
Steinunn Gerður (IP-tala skráð) 29.10.2007 kl. 22:01
Flaumþjálfun er málið!
Hringdu í mig og ég skal segja þér hvernig hún virkar. Hún byggist upp á einföldu lögmáli sífelldrar endurtekningar og setja sér markmið um ákveðinn orðafjölda til muna í dag, eftir 2 daga o.sv.fr... að lokum manstu allt reiprennandi, gaman líka að setja þetta upp í línurit..ýtir undir metnaðinn
Guðfinna Alda, 30.10.2007 kl. 13:59
já þetta eru allt góðar hugmyndir,
þylja upp aftur og aftur er eitthvað sem jú virkar alltaf, ...en það virkar ekki lengur á mig, ég bara gleymi öllu!
Flaumþjálfun, ég er allavega til í að vita meira um það, ...en svaraðu þá í símann þinn stelpa!
að lokum Pálína, þetta er nú frekar ofbeldisfull aðferð, er sveitalífið búið að breyta þér í einhvern villimann? Þetta lið út á landi sko, alltaf í tómu tjóni útúrdópað og fokking klikkað!*
*Múhaha
Góða helgi svínkurnar mínar
Berglind (IP-tala skráð) 2.11.2007 kl. 15:36
Hey Berglind...prufaðu að panta þér Cell Activator sem er nýtt vítamín í HBL...þetta er að redda brjóstaþokubullinu hjá gellum eins og okkur sem erum brjóstabínur:) Mæli eindregið með þessu...fékk minnið aftur þegar ég fór að nota þetta hehehe:)
kveðja Steinka heilsugúrú:)
Steinunn Gerður (IP-tala skráð) 6.11.2007 kl. 21:42
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.