UPPLYFTING:)

Hæhæ gellur:)

Langar bara að vita hvað þið eruð að gera þessa dagana gellur og senda ykkur risaknúsing héðan úr heilsusenterinu:) Var að stofna heilsuklúbb sem heitir UPPLYFTING og er fyrir alla sem langar til að lyfta heilsunni sinni upp á hærra plan:) Endilega látið mig vita ef ykkur langar að vera með:) Planið að hittast einu sinni í viku og gera eitthvað uppbyggilegt með fullt af skemmtilegu fólki:)

Langar líka að benda ykkur öllum á að lesa The Secret, hún er alveg snilldin fyrir alla sem vilja fá allt það besta út úr lífinu:)

Knús knús

Steinkan í heilsufíling:)


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ohhh æðislegt....

Þú skráir mig inn og ég verð að fara lesa bókina. Það eru allir að tala um hana :)

Knús knús frá króknum

Pálína (IP-tala skráð) 27.9.2007 kl. 22:51

2 identicon

Jii ég er búin að lesa hana og hún er alveg rosalega góð. Það þurfa allir að lesa hana og maður þarf að tileinka sér þennan hugsanagang.

Camilla (IP-tala skráð) 28.9.2007 kl. 13:23

3 identicon

já ég er geim, verð að fara að huga að heilsunni, ekki alltaf vera í þessum skyndibita, sem hentar best þegar maður er alltaf á hraðferð, og talandi um að hætta í þessu bakaríisdóti, ekki gott fyrir magann.. né línurnar.

er undir alveg geðveiku álagi núna, alltof mikið að gera.... úff mar alltaf að reyna að leika ofurkonu... ég sem ætlaði að fara að slaka aðeins á,  er núna í 12 einingum í háskólanum, er svo soldið að skúra og alltof mikið í bakarínu.. er svo að reyna að vera mamma líka... þetta hefur pússlast ágætlega saman en maður verður soldið þreyttur á endalausu álagi og áreiti.. stefni á að taka því rólegra eftir áramót... bjartsýn hehe en svona er að langa að gera svo margt og reyna að gera allt í einu... fer ekki vel saman óþolinmæði og fullkomnuárátta belive me.. en þetta skilar sér á endanum:)

reyni að lesa þessa bók við fyrsta tækifæri... hef heyrt hún sé rosalega góð og falleg:)

hafið það sem best sætur

knús Snolla stress

Snolla (IP-tala skráð) 28.9.2007 kl. 15:22

4 identicon

Hef ekki lesið þessa bók en hef það frá nokkrum aðilum að þarna sé verið að selja fólki, með nægri markaðssetningu þá basic hugmynd sem löngu hefur verði þekkt að það að setja sér markmið og hafa trú á sjálfum sér, hjálpi manni að koma sér áfram í lífinu. Hún hefur mikið verið í umfjöllun í sálfræði-vinahópnum mínum sem öll gagnrýna hana harðlega fyrir að vera að segja ekkert annað en sjálfsögð sannindi.  Einn vinur minn kom að auki  með þann punkt að ef boðskapur þessarar bókar væri sannur þá væri nú illa farið fyrir fólki með áráttu þráhyggju hegðun!!! Hehehe

En allavega..hef ekki lesið hana sjálf svo ég ætla ekki að dæma hana, en viðurkenni að ég held þetta sé óttalegt jarg.....

Dæmi annars hver fyrir sig...

Annars góða helgi to you all!

Guðfinna (IP-tala skráð) 28.9.2007 kl. 16:18

5 identicon

En ef bókin segir sjálfsögð sannindi er það þá ekki bara jákvætt? ef að þessi aðferð (að lesa þessa bók) hjálpar fólki að trúa á sjálfan sig og setja sér markmið þá er það bara æði! (*_*)

Hlakka geggjað til að lesa þessa bók, þar sem ALLIR ERU AÐ TALA UM HANA.........

Inga* (IP-tala skráð) 28.9.2007 kl. 16:38

6 identicon

Nú er ég ennþá spenntari að lesa bókina.

Ég er mjög sammála Ingu. ef bókin segir sannindi og fólki líður vel eftir lestur hennar, þá finnst mér aðferðin ekki breyta neinu máli.

Allt sem fær fólk til að hugsa og ´betri líðan eftir á er bara frábært.

Knús elskur

Pálína (IP-tala skráð) 28.9.2007 kl. 18:10

7 identicon

Það er samt á þessu formi Guðfinna sem fólk þarf að nálgast þessi sannindi og með þessari markaðsetningu því fólk er ekki grúskandi í sálfræðibókum til að finna hin einfalda sannleika. Þessi bók er bara gott dæmi um góða sjálfshjálparbók sem ég held að veiti ekkert af í slíku þjóðfélagi sem við lifum í í dag. Ég efast um að höfundur bókarinnar hafi gefið út þessa bók fyrir áhyggju og þráhyggjusjúklinga sem er varla brotabrot af því fólki sem les hana.

Allavegana elskurnar ég mæli með þessari bók því hún bætir, kætir og hressir.

 Góða helgi elskurnar.

Camilla (IP-tala skráð) 28.9.2007 kl. 18:25

8 identicon

hehehe já ég er alveg sammála Pálínu og Camillu...ef þetta getur hjálpað fólki þá er þetta bara gott mál myndi ég segja:) Höfundur bókarinnar skrifaði hana með það að markmiði að hjálpa fólki en ekki selja hana til að græða (þá ekki nema bara til að fá borgað fyrir alla vinnuna sem hún er búin að leggja í hana)!!

Allavega held ég að hún geti hjálpað FUUULLLTT  af fólki og því tel ég þetta gott mál, þó það væri ekki nema einn sem myndi fá hjálp með henni tel ég það bara frábært:)

og annað...það eru ekki allir sem fatta þessi sjálfsögðu sannindi svona einir með sjálfum sér og því bara gott mál að setja þetta upp á mannamáli til að aðrir geti nálgast þetta sem fatta það ekki sjálfir:)

Mæli enn og aftur með henni og ég get bara sagt fyrir mitt leyti að hún er búin að hjálpa mér að verða enn jákvæðnari og öruggari með sjálfan mig:)

knús til ykkar allra:)

hittumst svo í heilsuklúbbnum í næstu viku gellur...allir vinir velkomnir:)

Steinkan í stuðinu:)

Steinunn (IP-tala skráð) 28.9.2007 kl. 18:37

9 identicon

Steinunn sagði:

"Höfundur bókarinnar skrifaði hana með það að markmiði að hjálpa fólki en ekki selja hana til að græða (þá ekki nema bara til að fá borgað fyrir alla vinnuna sem hún er búin að leggja í hana)!! "

 Davíð segir:

hahahahahahahahahahahaha.

Einmitt.

Davíð Völuson (IP-tala skráð) 28.9.2007 kl. 18:48

10 identicon

Frábært að sjá allt það líf sem komið er hér inn á þessa búasíðu okkar. Loksins er gaman að kíkja inn á bloggið. En er ekki málið að vera svolítið málefnaleg í stað þess að vera með hæðni!!!

Enn og aftur elskurnar hafið það gott um helgina og gangið hægt um gleðinnar dýr!!!!

Camilla (IP-tala skráð) 28.9.2007 kl. 22:29

11 identicon

Ég hef horft á þessa mynd og fannst gaman af henni og
fannst hún einnig áhugaverð. Ég hef líka lesið þónokkuð
um þennan höfund og hennar saga er eftirfarandi:

Um 2004 var líf hennar í rúst, andlega, fjárhagslega og á all flesta vegu.
Stuttu síðar missti hún pabba sinn og mamma hennar var þá á dánarbeðinu.
Þá ákvað hún að lesa bók eftir Wallace D. Wattles sem var skrifuð 1910, sem
fjallaði einmitt um "Law of attraction". Hún las bókina spjaldana á milli, og
fór að haga lífi sínu eftir henni. Eftir það fór henni að vegna miklu betur
í lífinu, andlega, fjárhagslega o.s.frv. Henni fannst þessi fræði hjálpa sér
svo mikið að hún vildi deila þessu með sem flestum: þ.a. það fyrsta sem hún
gerði var að gefa út myndband á netinu - s.s. í engu gróðaskyni!
Þetta myndband fékk svo góðar viðtökur að þá fór boltinn að rúlla..

Þ.a. ég hef ekki trú á að hún hafi gert þetta í gróðaskyni, en allt sem
verður vinsælt fær fljótlega á sig alls kyns gagnrýni.

 p.s. Sammála síðasta ræðumanni :-)

Ísak (IP-tala skráð) 28.9.2007 kl. 22:50

12 identicon

Tekið upp úr bókinni The Secret eftir Rhonda Byrne:

,,Marmkmið mitt með að búa til Leyndarmálið var (og er enn) að færa gleði inn í líf margra milljóna manna um heim allan..."

Önnur tilvitnun:
,,Tuttugu og fjórir einstakir lærimeistarar eru í aðalhlutverki í þessari bók. Tekið var viðtal við hvern og einn þeirra og farið um öll Bandaríkin til að hitta þá og safna upplýsingum...Ég deili með þér í þessari bók öllum mögulegum leiðum, bæði einföldum og auðveldum, ásamt hugmyndum sem ég hef fengið, svo að þú getir lifað því lífi sem þig hefur dreymt um."

segir allt sem segja þarf að mínu mati:) Aðrir mega dæma eins og þeir vilja...

kveðja Steinunn gleðipinni:)

p.s. minni á heilsuklúbbinn UPPLYFTINGU. Allir vinir velkomnir:)

Steinunn Gerður (IP-tala skráð) 28.9.2007 kl. 23:12

13 identicon

Ég var nú alls ekki að reyna að vera með einhver leiðindi eða gera grín að Steinunni. Mér finnst bara ansi líklegt að á einhverjum tímapunkti hafi öll þessi markaðssetning og sölustarfsemi hætt að snúast alfarið um að hjálpa fólki yfir í það að búa til peninga. Sem er bara fullkomlega eðlilegt.

Auðvitað segir höfundur og meinar örugglega að upphaflega hafi það verið markmið henar að hjálpa fólki, en núna er orðin svakalega mikil markaðslykt af þessu.

Ps. ég hef ekki lesið bókina og þetta er engan veginn gagrýni á hana eða hennar efni. Ef þetta hjálpar fólki þá er það frábært.

Davíð (IP-tala skráð) 29.9.2007 kl. 09:11

14 identicon

OG NÚNA ERU BÚARNIR FARNIR AÐ BLOGGA MEÐ OKKUR, FINNST ÞETTA ÆÐI!!! strákar þið eruð frábærir að leggja orð í belg hérna!.....þetta stefnir í OFURBLOGG BÚA :)

LUV YA ALL

Inga* (IP-tala skráð) 29.9.2007 kl. 12:00

15 identicon

Sælar elskurnar mínar.

Vildi bara láta ykkur vita að ég er á lífi ennþá í bili samt. ER GJÖRSAMLEGA AÐ GERA ÚT AF VIÐ MIG á vinnu, heimili og skóla. Ég er ekki ennþá byrjuð í skólanum. í hvert sinn sem ég sest við tölvuna eða opna bók að þá gerist eitthvað sem verður til þess að ég fer að vinna í staðinn eða þarf að sinna einhverju á heimilinu. Ég er að reyna núna að læra eins og geðsjúklingur án þess að drepa mig. Er svotil hætt að sofa og borða vegna stress og álags og hef ekki tíma fyrir eitt né neitt. Þannig að ég verð lítið á ferðinni bæði hér á blogginu og almennt þar em ég verð að klára 6 verkefni fyrir næstu viku, inn í því er að föndra, finna kýr og taka myndir, gera þrykk, klára brúðuna mína, mála, lesa 15 danskar greinar um mynlist og hennar fræði, klára tvö verkefni í félagsfræði (sem ég skil ekki baun í) en ef þið viljið sjá hvernig ég lít út í dag þá getið þið kíkt á www.husaskoli97.bloggar.is og séð mynd af kellunni og hvernig hún leit út 1 sept held ég hafi ekki hitt neinar ykkar síðan fyrir það allavega.

Knús og kossar til ykkar allra sakna ykkar geðveikt

Magga

Magga (IP-tala skráð) 29.9.2007 kl. 16:55

16 identicon

Stelpur mínar, það þýðir ekkert að vera stressa sig svona :)

Uppskriftin hjá okkur Steinku er alveg að virka, bara nett chill og kæruleysi og vitið þið til. Þið eigið eftir að fá það margfalt til baka, einkunnir hækka og allt saman......

EKki gleyma að borða , sofa, hanga með familíunni og vera til elskur... Því það er það eina sem skiptir máli. Hitt allt er bara aukaatriði ;)

Ice ice baby tralalallalalaalallalalal

Knússssssssssss

Pálína (IP-tala skráð) 30.9.2007 kl. 18:10

17 identicon

Já hressandi umræður sé ég! :D Svona á þetta að vera! Sýnist ég samt vera í algjörum minnihluta með að gleypa ekki við gæðum bókarinnar án nokkurs efa...

Það er ekki gaman að neinu í lífinu ef ekki er hægt að gagnrýna það eða rökræða það. Flottustu vísindarannsóknir sem gerðar hafa verið hafa ekki verið lausar við gagnrýni, hún er af hinu góða... svo þar til ég hef séð myndina/ lesið bókina þá ætla ég að hafa gagnrýninn huga gagnvart henni sem og flestu öðru sem sett er fram í  tilverunni hvort sem það eru sjálfshjálparbækur eða rannsóknir í læknavísindum..Varðandi gróða eða ekki gróða af þessari "hugmynd rithöfundarins" verð ég að taka undir orð Davíðs með að það er ansi mikil markaðslykt af þessu..því þarna er verið að selja hugmyndir sem birst hafa í alls konar formi bæði í eldri sjálfshjálparbókum sem og sálfræðipælingum, en ég endurtek að ég hef ekki lesið bókina svo ég er ekki dómbær á hana, en held skeptíska viðhorfinu mínu þar til hún sýnir mér annað, við Vala ætlum að horfa á myndina við tækifæri...kannski maður tjái sig frekar eftir það! Er til dæmis sýnt fram á einhverjar rannsóknir í henni eða eitthvað sem ,,styður" það að þetta sé rétt hjá höfundinum annað en ein og ein manneskja að segja frá reynslu sinni....Verður áhugavert að sjá...

Guðfinna Alda (IP-tala skráð) 1.10.2007 kl. 11:02

18 identicon

já allir mega hafa sína skoðun en ég er bara alls ekki á þeim buxunum að það þurfi að sýna vísindalegar rannsóknir á öllum mögulegum hlutum...sumu verður maður bara að trúa!! ég hef hins vegar heyrt margar sögur og hef reynslu af því sjálf að secretið virkar og það eru nægilegar sannanir fyrir mig...þeir sem þora eða vilja ekki trúa þeir mega bara gera það fyrir mér...en ég ætla bara að halda áfram að nota aðdráttaraflið mér til uppdráttar...aðrir mega sleppa því ef þeir vilja, því frjáls vilji er jú til að nota hann:)

En Magga mín...sammála þessu sem Pálína var að segja ekki gleyma að lifa og njóta elskan:) og þið allar hinar:) Þetta reddast jú nó:) Allavega reddast allt miklu betur ef maður sleppir því að vera stressaður...þá bætast nokkrir klukkutímar við sem fara ekki í það að vera stressaður hehe:) En risaknúsingur til ykkar allra...LUV JÚ GELLS

Steinkan í gleðifílingnum hér með secretið hehe:)

Steinunn Gerður (IP-tala skráð) 1.10.2007 kl. 11:15

19 identicon

Allt jákvætt er hið besta mál ef það er bara selt í réttum umbúðum....

Guðfinna (IP-tala skráð) 1.10.2007 kl. 11:56

20 identicon

Þessi bók hefur hjálpað fullt af fólki, ég tileinkaði mér margt úr þessari bók eftir að ég las hana. Þó svo að ég reyni nú yfirleitt að vera jákvæð út í lífið og hef komist þangað sem ég hef ætlað mér að þá fannst mér gott að lesa þetta á prenti.

Í upphafi var þessi bók gefin út með það fyrir augum að hjálpa fólki og hún sló í gegn. Það var ekkert við þessa bók sem gat sagt höfundi að hún yrði svona gríðalega vinsæl eins og hún er. Ef það er einhver markaðslykt af þessu af hverju gera þá ekki aðrir bókaútgefendur nákvæmlega það sama því þetta er þá fín leið til að græða peninga.

Fólk er ekki fífl(í flestum tilvikum=0) og það verður að vera eitthvað varið í hlutina til að þeir seljist svona eins og þessi bók. Ég ætla ekki að vera með neinn áróður hér eins og um sé að ræða trúarbrögð. Ég var til dæmis ekki sammála öllu í bókinni eins og það að ef þú færð krabbamein þá hafiru beðið um það. Það er mjög erfitt að segja fólki sem er kannski nýbúið að missa barnið sitt úr krabbameini að út frá secret hafi það beðið um þetta. En þessi bók gaf mér nýja sýn á neikvæðar hugsanir og hvernig er best að sniðganga þær og taka upp jákvæða hugsun. Það var nóg fyrir mig og eflaust hina sem lesið hafa bókina.

Bless í bili

Camilla

Camilla (IP-tala skráð) 1.10.2007 kl. 12:05

21 identicon

Guðfinna; hvað eru réttar umbúðir á jákvæðni? ef það er ekki old-skúl bók eða internetið, námskeið eða mynd, góð reynslusaga eða slæm? hvað er það þá?

Inga (IP-tala skráð) 1.10.2007 kl. 14:31

22 identicon

ps. það "vísindalega" sannað að jákvæð hugsun og bjartsýni hjálpi manni að "lækna" sig ásamt vísindlegum lyfjum og meðferðum!!!

ÁFRAM BÚAR Í SÁLARHREINSUN OG ANDLEGRI LEIKFIMI, LÍST VEL Á ÞETTA!!

Inga (IP-tala skráð) 1.10.2007 kl. 14:35

23 identicon

Ég er ótrúlega sammála mörgu sem hefur komið hér fram.

Gagnrýni er ávallt jákvæð en þó finnst mér út í hött að gagnrýna bara til að gagnrýna. Auðvita á engin að gleypa við öllu bara sem gefnu, en maður á heldur ekki að vera búin að ákveða að gagnrýni . Vera á móti til að vera á móti!!

Ef eitthvað slær í gegn á markaði til ákveðna markhópa þá er það vegna þess yfirleitt að það hefur eitthvað til málanna að leggja. En vinsældir bjóða ávallt um á mikla gagnrýni.

Gott dæmi er list. Ákveðinn kúnnahópur segir ávallt við ákveðnum myndum, hvað !! hver getur ekki gert þetta, þessi list er barnaleikur. Á móti kemur að listamaðurinn segir af hverju gerir þú þetta þá ekki? Víst þetta er svona auðvelt og ég er að græða????

Einfaldleikinn er oft söluvænlegur og gagnrýninn...

En þá segi ég eins og Camma, af hverju eru þá ekki mikið fleiri komnir í það að flytja hinn ,,einfalda" sannleika og græða á honum??

Ég spyr líka eins og Inga, hvað eru réttar umbúðir á jákvæðni Guðfinna?

Annað en nákvæmlega það sem bókin The Secret er að gera

Í lokin vil ég hrósa því hvað við erum komin með frábærar umræður hérna,, þetta er æðislegt. Sem betur fer er fólk með og á móti....

Pálína (IP-tala skráð) 1.10.2007 kl. 16:14

24 identicon

vó... maður kemur ekki í einn dag og er bara að missa af heljarninnar umræðu... lýst vel á þetta:)

gott að allir eru ekki á sama máli:) það er svo miklu miklu skemmtilegra...

ég hugsa að ég fari meðalveginn... trúi á mitt innsæji og lika því sem rannsóknir hafa sýnt framá í hinu ýmsu málefnum..

 má það ekki annars:)

úff best að halda áfram með smjörið:P

er í gífurlega spennandi ritgerðarskriftum á bókasafninu... og alveg að falla á tíma... vinnur maður ekki best undir álagi;)

hlakka annars mikið til að komast yfir þessa bók strax eftir próf rétt fyrir jólin:=)

heyrumst sætur

knús

Snolla

snolla (IP-tala skráð) 1.10.2007 kl. 18:45

25 identicon

Inga mín, þú misskildir mig með umbúðirnar, var ekki að meina eiginlegar umbúðir heldur það að ekki eigi að selja trú eða heilaþvott í formi vísindalegs sannleika að hamingju...

En allavega, þá kynnti ég mér aðeins málið og virðist sem ég hafi ekki vitað nægilega mikið um málið því svo virðist sem þetta ,,leyndarmál" bjóði ekki einu sinni upp á klassísku aðferðina við að kenna fólki að setja sér markmið og hafa trú á sjálfum sér til hjálpa sér í lífinu, heldur sé þarna einungis verið að segja að nóg sé að hugsa sér að eitthvað gerist og þá gerist það og engar útskýringar á hvernig það sé hægt og þar af leiðandi engar rannsóknir eða ekkert!! Ef þetta er rétt, þá er þetta nú enn meira bull og heilaþvottur en ég hafði gert mér í hugarlund og í raun auðveldara að biðja bara til Guðs..

...Ef þessi bók hjálpar í raun og veru einhverjum (væri samt áhugavert að fá að vita um alla þá sem hafa prófað að hugsa sér eitthvað án nokkurs árangurs, nokkuð viss um að sú tala er hærri en hin...) er þá ekki bara um einhvers konar lyfleysuáhrif að ræða frekar en að þessi kona uppgötvaði leyndarmálið að hamingjunni ? Óskandi að lífið væri það einfalt að einhver ein manneskja fyndi bara uppskriftina að eilífri hamingju án nokkurs efforts frá manni sjálfum! En kannski má hugsa sem svo að það skiptir ekki öllu máli hvað það er nákvæmlega sem veldur því að fólki líður betur svo framarlega sem því líði bara betur svo ef fólk vill trúa því að þetta sé það sem hjálpi því þá er það í fínu lagi mín vegna, vonum bara að fólk sem þurfi á klínískri hjálp að halda fari ekki að treysta á þetta til að veita sér hamingju...

Ætla samt að sjá myndina /lesa bókina áður en ég get myndað mér frekari skoðun á þessu...

Guðfinna (IP-tala skráð) 2.10.2007 kl. 17:12

26 identicon

...að auki langar mig að bæta því við að mér finnst svona skoðanaskipti hressandi og sting upp á því að þeim fjölgi á þessu bloggi í framtíðinni! :)

Guðfinna (IP-tala skráð) 2.10.2007 kl. 17:23

27 identicon

An Icelandic friend told me about this discussion and translatet it for me.

What are you all talking about, it´s just a book?

Rhonda Byrne (IP-tala skráð) 2.10.2007 kl. 20:13

28 identicon

halló allar

 vá rosalega hressandi pælingar í gangi, gaman að sjá að það er hægt að tala um meira heldur en bara börn...;)

 hahaha... nei ég vildi bara koma með  smá pælingu

ok ef þessi bók á  að fjalla um það að ef þú hugsar jákvætt þá gerast jákvæðir hlutir EN ef eitthvað hræðilegt gerist eins og krabbamein, nauðgun og margir aðrir óútskýranlegir hlutir er það þá þer að kenna fyrir að hugsa ekki nógu jákvætt... eða hvernig útskýrir hún það í bókinni, þar sem ég hef ekki lesið hana þá veit ég þetta ekki en væri til í að fá svör við þessu frá þeim sem hafa lesið hana.

 En annars er ég á því að það hjálpar alltaf að vera jákvæður  og framkvæma það sem maður hefur áhuga á en er samt ekki viss að það sé það eina sem gerir mann hamingjusamann.... eða hvað?

Katý (IP-tala skráð) 2.10.2007 kl. 21:45

29 identicon

Vóó þetta er nú meira dramað útaf þessari bók!!!!!!!!!!

Ég hef reyndar ekki lesið hana en sá hinsvegar heimildamyndina sem var gerð eftir henni. Fannst hún nú bara mjög áhugaverð en ég held nú að það geti flestir verið sammála um að ef eitthvað slæmt í lífi mans gerist að maður hafi kallað það yfir sig á einhvern hátt með neikvæðum hugsunum, finnst mjög ótrúlegt að fólkið sem fer algjörlega eftir the secret lendi ekki í slæmum hlutum einhvern tímann á lífsleiðinni...hvað finnst ykkur um það? Hins vegar fannst mér frábært að sjá hvernig maður getur tileinkað sér mjög jákvæðan hugsunarhátt og ýtt í burtu neikvæðum hlutum(þó svo að það sé svosem ekki að koma fram með neinar nýjar kenningar þá þarf maður stundum á sífelldum enurtekningum að halda til að minna mann á hlutina)

Ég legg til að við lesum allar bókin og sjáum myndina, tileinkum okkur hugsunarháttinn í the Secret í mánuð og sjáum svo hvað gerist hjá okkur;)

Annars var það nú ekki meira í bili og fyrir þær sem eru að kafna úr stressi og álagi er ekki bara málið að taka sér aðeins minna fyrir stafni og læra að slaka aðeins á og njóta lífsins aðeins;)

Vala (IP-tala skráð) 2.10.2007 kl. 23:28

30 identicon

Vill benda á eitt Guðfinna...þessi kona uppgötvaði ekki þetta leyndarmál heldur fann hún fullt af fólki sem kom með sína reynslu af leyndarmálinu...þetta er ekkert sem hún er að finna upp, hún er aðeins að deila þessu með heiminum svo aðrir geti notið þess líka!!

Svo annað...ég fann það ekki neins staðar í bókinni að ef þú hugsir ekki nógu jákvætt þá fáirðu krabbamein eða verðir nauðgað eða eitthvað álíka!!! held að fólk sé eitthvað aðeins að ruglast þar!!! Hins vegar er til FUULLLT af fólki sem hreinlega vill vera veikt eða neikvætt og fúlt og það einvhernvegin festist í þessum farveg, þessu hef ég orðið sjálf vitni að bara í gegnum nuddið, og það er bara í gegnum það...guð má vita hvað er þá mikið af svoleiðis fólki þarna úti!!!

Svo Guðfinna mín...maður tapar allavega engu á því að vera jákvæður út í lífið en maður tapar hins vegar á því að vera sífellt neikvæður...ég persónulega hef mjög góða reynslu af secretinu og þessvegna benti ég á hana í upphafi. ég er ekki að reyna að heilaþvo neinn eða álíka...vildi bara vera góð við ykkur og benda ykkur á þessa fallegu bók, því mér finnst hún svo æðisleg...ég var bara að deila með ykkur minni reynslu:) En svo er það með öll ráð og heilræði sem maður fær...maður tekur það sem maður vill taka og hendir hinu...

Ég verð að segja það að ég hef sjaldan ef ekki aldrei verið hamingjusamari en ég er núna eftir að ég fór að tileinka mér leyndarmálið markvisst (það er að segja að hugsa jákvætt eins oft og mikið og ég get)...maður er líka bara allur léttari í lund og svonna hehehehe:) ég er samt ekki að segja að ég noti þetta sem einhver trúarbrögð eða trúi að þetta sé það eina rétta í lífinu og ekkert annað virki ... enda trúi ég á Guð og bið til hans oft á dag...auðvitað fær maður aldrei allt sem maður vill...enda segir í faðirvorinu "verði þinn vilji" og ég trúi því að almættið (hvar og hver sem hann/hún er) viti hvað mér er fyrir bestu.

Aftur á móti lít ég á hvers kyns neikvæða og erfiða reynslu sem eitthvað til að læra af og verða sterkari manneskja og ég hef alveg fengið minn skerf af erfiðleikum  !!! Þó að það sé vissulega ekki skemmtilegt að lenda í erfiðleikum og maður sér oft ekki fyrir endann á þeim á meðan þeir standa yfir, þá eftir á hef ég allavega alltaf getað horft til baka og séð að þessi reynsla hefur styrkt mig og að ég sé betri manneskja fyrir vikið...oftar en ekki getur maður líka notað þessa reynslu sína til að hjálpa öðrum sem skemmir ekki fyrir!!

En ég er sammála Völunni...prufið bara allavega að lesa bókina þið sem eruð ekki búnar að því!!!

En nóg um bull í bili...

Steinkan í heilsuátakinu:)

Steinunn Gerður (IP-tala skráð) 3.10.2007 kl. 10:02

31 identicon

Jæja stelpur mínar bara allt í gangi hér, hver var þessi enski dúddi með kommentið sitt hmmm

Guðfinna er þú lest á milli línanna að þá er það sem hún er að meina ef þú missir aldrei sjónar á því sem þú vilt þá endar með því að þú færð það. Það er auðvitað enginn svo kjánalegur eins og þeir í spaugstofunni að fara með debetkortið sitt út í banka og segjast ætla að taka út 80 miljónir og þegar bankakortið virkar ekki þá lætur hann hafa næsta og þegar það virkar ekki heldur þá segir hann bíddu aðeins ég hef misskilið eitthvað í bókinni. hehe Ég vona allavegana að fólk sé ekki svona kjánalegt.

Þetta verður mín síðasta umræða hér um Secret hef fengið pínu nóg í bili, ég set inn myndir bráðum frá NY og segi ykkur ferðasöguna. Hitti Bush og fleiri forseta Írans og svona, keyrði fram hjá Columbía háskóla sem hin umdeilda ræða forsetans átti að fara fram í. Finnst ykkur ekki pínu merkilegt að einn af virtustu lögfræðiháskólum heims sé staðsettur í Harlem!!!???

Jæja elskurnar takk fyrir skemmtilegar umræður.

Camilla (IP-tala skráð) 3.10.2007 kl. 12:36

32 identicon

Hehe já ég hlakka til að heyra ferðasöguna frá NY Camilla mín og er sammála því að hér er umræðunni um þessa fínu bók sé formlega lokið að minni hálfu...

Já ég verð nú að viðurkenna fáfræði mína um Bandaríkin að ekki vissi ég þetta með háskólann í Harlem...hélt að þar væru aðallega vandræðaunglingar og fátækt fólk, ekki virtir háskólar að minnsta kosti hehehe...:) Gaman að vita þennan gullmola...hann fer sko beint í useful information bankann minn hehehehehe:)

En knús til ykkar gellur...

Steinkan í maraþongírnum:)

p.s. ef ég þori nú að fara inn á aðra sálma sem eru nú ennþá umdeildari þá ef þið viljið kynna ykkur Herbalifeið þá endilega

Steinunn Gerður (IP-tala skráð) 3.10.2007 kl. 12:55

33 identicon

...sorrý, Ísabella aðeins að hjálpa til við skrifin...

en endilega kíkið þá inn á heimasíðuna mína http://www.heislufrettir.is/steinunn eða hringið í mig í síma 869-5609 :):)

Steinunn Gerður (IP-tala skráð) 3.10.2007 kl. 12:58

34 identicon

Hlakkar til að fá að sjá ferðabloggið um NY.

Nóg komið um bókarskrifin í bili ;) Getum tekið upp þessar hressandi umræður þegar bloggið á dauðatímabil hahahaah

Pálína (IP-tala skráð) 3.10.2007 kl. 17:14

35 identicon

Ég get hreinlega ekki setið lengur á mér. Það má alveg taka þetta komment og hlæja svolítið af því ef það er nauðsynlegt =)

Hverju skiptir þó að gellan hafi grætt á þessu? Má hún ekki bara græða? Þarf eitthvað að vera ,,markaðslykt" af þessu?

Þeir sem eru í þeim vinnum, að sjá um aðra, hjálpa, baða, kenna og plástra sálartetur landsmanna, þeir eiga heiður skilið - ekki lág laun og enga frídaga um jólin eins og stemningin er á Íslandi. Þeir sem eru í stakk búnir til að hjálpa öðrum þurfa að vera með allt sitt á hreinu. Maður getur hreinlega ekki byrjað að virkilega HJÁLPA öðrum og gefa af sér nema maður sé með sjálfan sig á hreinu og elski sjálfan sig. Til að geta elskað aðra, þarf maður að elska sjálfan sig. Til að geta hjálpað öðrum að vera jákvæður, þarftu að vera jákvæður!

Mér finnst bara allt í lagi að kona, sem finnur sjálfa sig, er himinlifandi yfir því sem hún hefur uppgötvað, vill að sem flestir sjái ljósið og LIFI - fái á endanum greitt fyrir það! Það fólk, sem sættir sig við lág laun til að gera það sem þeirra ástríða segir þeim að gera - hjálpa fólki - er alveg eins og Secret gellan - hún var tilbúin að skella sér í skuldir til að bera út boðskapinn, svo heppilega vildi bara til að hún græddi í leiðinni! Kennarar sem eru góðir og er á endanum boðin staða skólastjóra og fá feita launahækkun, fyrir það eitt að vera frábærir í sínu fagi og eru búnir að leggja grunninn að þessu með góðum störfum - þeir eru í sama pakka! Þeir ákváðu ekki að fara í Kennaraháskólann til að græða feita summu ÞEGAR þeir yrðu skólastjórar, það bara meikar ekki einu sinni sens og fyrir utan það að, ef maður hugsar svona - þá fara hjólin einfaldlega ekki að rúlla! Sá sem vill skjótfengna peninga - hefur enga þolinmæði og til að fá skólastjórastólinn og fallega skiltið með nafninu sínu á skólastjóraskrifstofuhurðina eða heimsfrægur rithöfundur með stórbrotinn og heimsþekktan boðskap - ÞARF HELLINGS ÞOLINMÆÐI! Þetta liggur í hlutarins eðli!

Hafið þið hugsað út í það að auðvitað fór hún út í þetta til að hjálpa fólki og miðla sinni reynslu og í leiðinni fóru peningarnir að rúlla inn - VEGNA ÞESS að hún uppskar það sem hún sáði? Er það ekki bara svoleiðis í lífinu? Guðfinna, fórst þú til dæmis í sálfræði til að græða geðveikt? Ég held ekki. Kannski samt, einhvern daginn, þegar þú hefur verið góður sálfræðingur í einhvern tíma og ert virkilega að hjálpa fólki og fólk er farið að leita til þín í hrönnum, þá fara seðlarnir að streyma inn og allt í einu ertu búin að borga upp námslánin og komin í fínan plús! Ég held að miðlar fari ekki út í að vinna sem miðlar til að verða MILLAR - heldur bara til að nýta sína hæfileika OG HJÁLPA ÖÐRUM! Allir hafa einhverja hæfileika og þeir nýta þá, sá í agnarsmáa garðinn sinn, byrja með EKKERT nema eldmóðinn, góðar hugmyndir og hugsanlega fuuuullt af skuldum eins og við öll (og eins og the secret gellan) og trúna á sjálfan sig og málstaðinn. Hvað gerist hjá svona fólki - fólki sem hefur þolinmæði, trú og eldmóð - jú á endanum, þegar hefur verið hugsað vel um litla garðinn sem stækkar ört, passað upp á ástúðina fyrir málstaðnum og viðkomandi nær að miðla sínu því viðkomandi geislar af trú, þá uppsker hún eins og hún sáir, að fólk trúir á hana, fer að tileinka sér málstaðinn ooooog plúsinn er að í leiðinni græðir hún pening! Ef maður fer út í eitthvað svona hálft í hvoru, veit ekki alveg hvort þetta gengur upp og svona, hefur sumsé ekki alveg rétta hugarfarið - þá takast hlutirnir líka bara hálfpartinn! Ef maður fer út í hlutina með heilum hug, ætlar sér eitthvað og hefur eldmóð fyrir því inní hjartanu - þá fer boltinn að rúlla! Fyrir utan það, hefði hún verið í það miklum peningapælingum - græða fljótt og örugglega, þá hefði hún líklegast farið að læra eitthvað afskaplega seif og boring, (eins og ég gerði með tölvunarfræðina) í þeim geira sem virkileg vöntun er á fagfólki, lesið allar bækurnar samviskusamlega, orðið fín í þessu fagi og grætt fullt af peningum á þeim markaði sem mest eftirspurn er eftir. Þetta er ekki að hafa trú á sér, sínum málstað eða að hafa þolinmæði! Þetta geta ALLIR gert, þetta er the seif way - frábær fyrir marga! Eeen það geta hins vegar ekki allir haft trú á sér, næga til að taka áhættu og fá í leiðinni fullt af gagnrýni! Ég dáist að þessari konu - fyrir að þora!

Hún hefur ekki setið heima hjá sér, nuddað saman höndunum með púkasvip og þefað af vísakortinu með háu heimildinni og hugsað með sér MÚHAHA - nú skrifa ég einhverja bók, hún verður heimsfræg, ég verð rík og get legið á bikíní á ströndinni það sem eftir er og drukkið stoberrí dakkerí og ropað hátt! Ef hún hefði hugsað þetta svona, þá hefði hún hreinlega ekki komist svona langt! Það hljóta allir að sjá það!

Lífið snýst ekki allt um peninga! Auðvitað skipta þeir máli en þeir eru samt svo innilega ekki allt! Ég á einn vin sem ákvað að græða fullt af peningum TIL að finna hamingjuna - hann er ekki hamingjusamur í dag. Fyrir suma virkar þetta afskaplega vel en ennþá göfugra markmið er að finna hamingjuna, hjálpa öðrum að gera slíkt hið sama og þegar boltinn er farinn að rúlla að öðlast þá bæði velgengni og seðla í leiðinni!

Mér finnst þetta allt bara liggja svo innilega í augum uppi - bókin virkar og gellan er frábær!

Þetta komment er orðið aaalltof langt - ég vildi nú bara koma því á framfæri að mér finnst boðskapurinn stórkostlegur og ég skil ekkert hvað er að því að hún hafi, eftir mikið puð, uppskorið vel! Hún secretaði velgengnina og gekk vel! =)

Anna Sigga (IP-tala skráð) 4.10.2007 kl. 10:21

36 identicon

hehehehehe já NÁKVÆMLEGA það sem ég vildi sagt hafa hehehehehe...mætti halda að við værum systur:)

Steinunn Gerður (IP-tala skráð) 4.10.2007 kl. 11:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband