Bíóferð búagellur!!!

hæhæ gells....

Haldiði að ég hafi ekki fengið alveg brilliant hugmynd (já ég fæ svoleiðis annað slagið hehe)...hvernig líst ykkur á það að fara í bíó saman gellurnar á laugardagskveld klukkan 22.00???

Það er nottlega EKKI option að segja nei nema maður sé að fara á árshátíð í barcelona og komist ómögulega með...þetta er eina löggilda afsökunin þannig að Pálína og Berglind þið hafið ekki neina afsökun þannig að það er bara málið að setjast upp í kaggann og bruna í bæinn til að koma með okkur í bíó hehehehe:) meira að segja ættu allir grísir að vera sofnaðir klukkan tíu þannig að það er heldur ekki afsökun...ekkert mál að fá pössun með fyrir sofandi gríslinga í tvo tíma:):):)

Mér er reyndar alveg sama á hvaða mynd verður farið en mig langar bara í bíó með ykkur gellum þannig að ef einhver hefur skoðun á hvaða mynd ykkur langar alveg ógeðslega mikið að sjá þá skulið þið bara koma með hugmynd:)

en kveðja og stuðknús frá Steinunni með hugmyndaflæðið hér á kantinum...

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég sest upp í kaggan núna, og verð mætt í bíó á lau...

Pálína (IP-tala skráð) 13.9.2007 kl. 12:13

2 identicon

Ég verð örugglega þunn þetta kvöld...svo ég sé til ,

en ef ykkur langar ógeððððslega mikið að fá rokk,ról,svita og eyrnaverk frítt þá vitið þið af mér á Amsterdam á föstudagskvöldið kl.22 , Aggi og co. eru að fara spila;) við Katrín verðum þar, slammandi fremstar með white-trash kúreka á milli okkar!!!

ps.í alvöru,það væri æði að sjá einhverjar af ykkur þarna ;)

luv u guys

*inga* (IP-tala skráð) 13.9.2007 kl. 14:58

3 identicon

Sælar elskurnar.

Efast stórlega um að ég komist. Er gjörsamlega að drukkna í skólanum og í vinnunni. Mikil mannekla í gangi og kellan er farin að sofa í 4 tíma á sólarhring...........

En knús og kossar ljúfur.

Magga

Magga (IP-tala skráð) 13.9.2007 kl. 23:04

4 identicon

Hæ,, vildi kasta á ykkur kveðju skvísur,  fínt nýja bloggið!

Guðfinna Alda (IP-tala skráð) 14.9.2007 kl. 12:51

5 identicon

hæ sætur...

væri svo til í að kíkja.... en veit ekki hvort ungarnir hleypi mér út...

 er búin að vera að drukkna í alltof mikilli vinnu og svo er skólinn byrjaður.... ef það væri ekki mömmuhelgi þessa helgi þá mundi ég svo skella mér.) 

sé ykkur vonandi sem fyrst:)

kv Snolla

 p.s steinka... væriru til í að selja mér smá orku..... í formi dufts sko:) fyrst þú ert orðin herbó dreifingaraðli:)

snolla (IP-tala skráð) 14.9.2007 kl. 13:28

6 identicon

Ég kemst því miður ekki, maður er alltaf með plön á laugardagskvöldum, betra væri að fara á virkum degi.

Vala (IP-tala skráð) 15.9.2007 kl. 18:42

7 identicon

Já og flott nýja lúkkið.

Ég ætti kanski bara að bjóða ykkur heim í bío, við vorum að fá okkur risa flatskjá og svaðalegt heimabío, engin smá græja.

Vala (IP-tala skráð) 15.9.2007 kl. 18:44

8 identicon

Hellú gellur....já halla malla...búagellur ekki að standa sig í skipulaginu...Pálína mætti meira að segja í bæinn til að koma með okkur í bíó og ég, hún og Camma skelltum okkur á knocked up...algjör snilldarmynd (sérstaklega fyrir mömmur) og ég mæli með henni ... gef henni alveg 5 stjörnur hehe:) En hlakka til að sjá ykkur þann 23. þegar við höldum sjeikapartý hér á bæ:)

knús knús

Steinkan sem var að koma úr bíó:)

Steinunn (IP-tala skráð) 16.9.2007 kl. 01:36

9 identicon

Já stelpur nú er bara að taka sig á....

Sofum í ellinni og hrúgum okkur í hitting soon

Love yaaaa

Pálína (IP-tala skráð) 16.9.2007 kl. 23:35

10 identicon

halló skvísur

ég kemst ekki þar sem ég er að fara að halda innflutningspartý,

sem ykkur er boðið í....

en heyri að það verður greynilega ekki mikil mæting frá búagellunum en vona nú samt að sem flestar sjái ykkur nú fært að mæta:)

 og steinka mín ég skal koma með þer í bíó stax eftir helgina:)

kv Katý

Katý (IP-tala skráð) 18.9.2007 kl. 11:18

11 identicon

hahahahaha

mín aðeins að rugglast á laugardögum

innflutningspartýið er núna á laugardaginn 22 sept. og ykkur er boðið...

kv katý

Katý (IP-tala skráð) 18.9.2007 kl. 11:51

12 identicon

Jeij Katý þá kemst ég í það :) Er einmitt með smá gjöf handa ykkur hjúum í tiilefni áfangans...  :*

Guðfinna Alda (IP-tala skráð) 18.9.2007 kl. 12:41

13 identicon

ÆÆjjjji Katý, ég kemst því miður ekki, er að fara á Risa-tónleika á Gauknum:)

Inga (IP-tala skráð) 18.9.2007 kl. 13:26

14 identicon

hæhæ gella:) ´

Siggi er að fara í veiðiferð þannig að ég kemst ekki gella en skemmtið ykkur vel:)

knús Steinkan

Steinunn Gerður (IP-tala skráð) 18.9.2007 kl. 17:59

15 identicon

Við mætum;)

Valas (IP-tala skráð) 19.9.2007 kl. 21:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband