Geggjaður morgunmatur
14.8.2007 | 19:56
Þar sem núna er allt krökt í berjum allstaðar, þá læt ég eina uppskrift koma hérna. Stelpur þetta er geðveikt gott og frábært að gera þetta núna þegar berin eru allstaðar.
1 dl vatn
4 dl frosin bláber
1-2 bananar
1/2-1 bréf af original green tea powder
Allt sett í blandara þar til drykkurinn er silkimjúkur
Mæli með þessu, enda algjör vítamínbomba........
Kv Króksfrúin
Athugasemdir
halla malla Palla mín...þú ert bara að brillera á blogginu þessa dagna...á mín að vera að læra eða hvað hehehehe:)
Mér sýnist maður þurfa að skella sér í berjamó og græja sér svo svona sjeik mmmmm hljómar allavega mega vel...ætli þetta geti haldið manni vakandi yfir skólabókunum hehehe, mér tókst allavega að dotta yfir setningafræðinni í morgun þannig að manni veitir ekki af smá svona orku:) takk fyrir þetta pjallan mín...hlakka til að hitta þig um helgina og spjalla um fallega samsett júgur og fleira hehehehehe:)
En ætla ekki allir að mæta ferskir í afmæli hjá kúlurassinum eða hvað...koma svo stelpur setjum smá stemmara í þetta hehe:)
knús frá dottaranum
Steinka stuðari:) (IP-tala skráð) 14.8.2007 kl. 23:22
heheheh Steinka mín það mætti halda það að ég ætti að vera að læra. Actually á ég að vera gera það hahahahahha....
Maður er allavega alvge komin í bloggstemmarann fyrir veturinn !!
Ég get ekki beðið eftir afmælinu hjá stelpunum og vonast svo sannarlega tila ð sjá ykkur sem allra flestar...
PALLAN SEM ER KOMIN Í STEMMARANN
Pálína (IP-tala skráð) 15.8.2007 kl. 10:38
Líst ógó vel á þetta blogg og það sem er í uppsiglingu í bloggstuðinu í vetur!!!!!!!!!!!
geeðveikt girnó shake-a-mix!!!
xxx
Inga (IP-tala skráð) 15.8.2007 kl. 20:18
ps.Pálína,hvar í Reykjavík er krökt af bláberjum,annarsstaðar en í Melabúðinni??? kræktu í krækiber á króknum og kreistu þau yfir í víkina;) LUV***
Inga (IP-tala skráð) 15.8.2007 kl. 20:24
Þú verður að koma og gefar mér svona skot Palla mín þegar þú kemur, þetta verður kannski bara fyrsta skot kvöldsins múhahahhha(ein alveg húmorslaus) En stúlkur ef þið vitið um einhverja skemmtó drykkjuleiki eða partyleiki endilega skellið þeim hér inn, kann nebbla engann.
Bæ bæ í bili Camilla
camman (IP-tala skráð) 16.8.2007 kl. 09:28
hæhæ gellur:)
Herru palla mín...ég er ekki alveg að komast inn á notandanafni og lykilorði...þarf eitthvað að fá útskýringu á þessu...greinilega ekki með heilann í lagi í augnablikinu...kannski er ég full af nafnliðum og frumlögum hver veit hehe:)
Hlakka GEGGJAÐ til að koma í ammlið á morgun...á ekki að skella sér í menninguna á morgun gellur hvernig er það:)
knús Steikin að læra setningafræðina:)
Steinunn Gerður (IP-tala skráð) 17.8.2007 kl. 22:46
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.