Tapas í kveld
27.2.2008 | 12:26
Tapas í kvöld kl 20 á Tapas barnum
Sjáumst þar pæjur
KV Pála
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Afmælispartý í Lindasmára 27:)
21.2.2008 | 10:32
Jæja gellur:) Afmælinu hans Patta verður frestað fram á þriðjudag (26. febrúar) klukkan 17.00 því svo fáir komast í dag:):) Langar svo að við hittumst og að krakkarnir fái að hittast því það er orðið allt of langt síðan síðast:) Vona að sem flestir komist á þriðjudag því ég er farin að sakna ykkar ALLTOF mikið...:) p.s. þá getum við líka planað helgina úúú:)
Knús knús Steinunn og Pattalingur afmælisstrákur:)
Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Minning
15.2.2008 | 21:19
Varð að deila þessu með gömlu FÁ-stelpunum mínum
(tekið af fa.is)
Í dag er borinn til grafar Kristinn Kristjánsson framhaldsskólakennari. Kristinn fæddist í Reykjavík 23. september 1954. Hann lést á heimili sínu 5. febrúar síðastliðinn.
Kristinn kenndi íslensku við Fjölbrautaskólann við Ármúla. Hann var ötull kennari og vann m.a. ómetanlegt frumkvöðlastarf þegar skólinn gerðist þróunarskóli í upplýsingatækni og hóf fjarkennslu. Hann var frábær fagmaður, höfundur kennsluefnis og oft manna fyrstur til að koma auga á nýjar leiðir í kennsluháttum.
Kristinn var einn stofnenda félags sem hafði það að markmiði að efla veg íslenskra glæpasagna; Hins íslenska glæpafélags. Hann var fyrsti foringi félagsins og heiðursforingi þegar hann lést.
Starfsmenn skólans votta syni hans og ástvinum innilegustu samúð.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Hugmynd
15.2.2008 | 15:53
Hæ elsku pæjurnar mínar
Þar sem mér sýnist að við getum ekki komið okkur saman um dagsetningu á ferð til Akureyrar, þá ætla ég ekki að láta deigan síga heheh. Þið losnið ekkert svona við mig pæjur. Ég er að koma í bæinn síðustu helgina í febrúar og datt í hug hvort við gætum kannski skellt okkur í leikhús eða eitthvað. Mig langar allavega ægilega mikið að hitta ykkur.
Annahvort það eða við tökum daginn frá og skellum okkur í Bláa lónið eða eitthvað. Hvað segið þið um þetta ?????
Ég er með fullt að hugmyndum og marg skemmtó hægt að gera, aðalmálið er bara eru þið til og eru þið lausar??????
Kv Pála
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Þvílíkar HETJUR!!!
12.2.2008 | 17:00
Jedúddamía...ég sit hérna með tárin lekandi niður kinnarnar...þetta verða hér með fyrirmyndirnar mínar!!! Þetta er algjörlega möst see...
http://www.youtube.com/watch?v=oyiApzjIuzw
Knús knús Steinkan í væmniskasti:)
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Snolla febrúarpía
11.2.2008 | 20:49
Snjólaug er orkubolti með afslappaða framkomu (ekki alveg eins
athyglissjúk og margar af okkur í hópnum, heldur sig bara á jörðinni:) hún
er alltaf að framkvæma trilljón hluti í einu og margir mættu hafa hana sem
fyrirmynd, dugleg og alltaf jákvæð og glöð í framkomu.
Hún er OFUR-KONA! Gull af manneskju. Hjartahlý og innileg. Vinur vina sinna. SUPERMOM. Fallega að innan sem utan. Samviskusöm og dugleg.
Snjólaug er yndisleg manneskja sem er hörkudugleg. Hún gleymir of oft sjálfum sér í allri þeirri flóru sem hún tekur sér fyrir hendi, en gerir þó allt 100%.
Snjólaug þú ert frábær manneskja !!!!!!!!!!
Knús knús
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Febrúarkomment
6.2.2008 | 21:49
Jæja stelpur
Febrúarpían er Snolla og ég ætla fara búa til flotta færslu um hana.
Sendið mér ykkar hugleiðingar og komment á palinaosk@gmail.com um hana Snollu. Gerum eins og seinast, nokkrar setningar !!
Knús knús
Pála
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Hittingur hjá mér
3.2.2008 | 21:52
Búapíur!
Mig langar svo til að fá ykkur í hitting til mín í vikunni!
Hvað segið þið um fimmtudagskvöldið kl.21???
Fæ snyrtidömu til að kynna fyrir okkur Avon snyrtivörur!
http://www.avon.is/
~Með saknaðarkveðju frá Vesturbænum~
Inga
Bloggar | Breytt 4.2.2008 kl. 10:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Góða helgi skvísur
1.2.2008 | 15:19
Hvað á að bralla um helgina? Hér norðanlands snjóar og snjóar,, það er varla að marr komist út úr húsi án þess að vaða skaflana heheh. En það er bara skemmtilegt.
Hafið það geggjað gott um helgina elskur.......
knús knús
Pála
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Ævintýraferðin
23.1.2008 | 14:34
Jæja pæjur nú er komið að því að skipuleggja þessa ferð ögn betur svo að henni verði.
Pottþéttar inn í ferð
Pálína
Inga Hrönn
Camilla
Katy
Steinunn
Guðfinna ( kannski, búin að láta heyra í sér allavega hér í kommentakerfinu)
Þið sem eigið eftir að svara
Vala
Snolla
Berglind
Magga
Katrín( Inga endilega draga hana með)
Held að ég sé ekki að gleyma neinum
Dagskrá
Fös: Koma á norðurland. Katy nefndi að það er möguleiki að vera hjá henni, þá er það chill og kannski kíkja í pottinn um kvöldið .). Einnig væri gaman að fara í Litla- skóg, ég er með marga frumlega leiki sem ég hef lært í skólanum. Mohito á brúsa og við skemmtum okkur í skóginum.
Lau: ENDALAUS GLEÐI, skíði, bretti, þota eða whatever :O). Er með varaplan ef snjórinn klikkar og svo tjútt um kvöldið.
Sun: Heimför og gleði í hjarta yfir ÆVINTÝRAHELGI MEÐ BÚA.
Málið er að við þurfum að negla endanlega dagsetningu og endanlega tölu. Því ég þarf að athuga með húsnæði á Akureyri. Þannig stelpur ef þið sjáið ykkur ekki fært að koma, endilega segið það svo marr geti haldið áfram að plana hihihihi.
Jæja knúsírassgöt
ég er of spennt fyrir þessu
Pála
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)